Sagan / The history

Brydebúð og Halldór kaupmaður
🇮🇸 Halldórskaffi er til húsa í Brydebúð, einu merkasta söguhúsi Suðurlands. Húsið var upphaflega reist í Vestmannaeyjum árið 1831 sem hluti af versluninni Godthaab. Árið 1895 var það flutt til Víkur í Mýrdal af kaupmanninum Johan Peter Thorkelin Bryde og varð eitt af fyrstu húsunum sem reist voru varanlega á Víkursandi. Brydebúð gegndi mikilvægu hlutverki í verslunarsögu Vestur Skaftafellssýslu um áratugaskeið og er í dag friðað hús.
Nafn Halldórskaffis er þó ekki dregið af Brydebúð heldur Halldóri Jónssyni kaupmanni í Suður-Vík. Halldór hóf verslunarrekstur í Vík árið 1884 og átti stóran þátt í að leggja grunn að verslun og uppbyggingu byggðarinnar. Verslun hans var rekin í öðru húsi sem síðar varð þekkt sem Halldórsbúð.
Þótt Halldórskaffi sé staðsett í Brydebúð í dag lifir minning Halldórs kaupmanns áfram í nafni kaffihússins. Þar mætast tvær sögur verslunarþorpsins Víkur; saga hins merka verslunarhúss Brydebúðar og saga frumkvöðulsins Halldórs Jónssonar sem markaði djúp spor í atvinnu- og verslunarsögu staðarins.

Brydebúð and Halldór the Merchant
🇬🇧 Halldórskaffi is located in Brydebúð, one of South Iceland’s most historic timber buildings. Originally built in Vestmannaeyjar in 1831 as part of the Godthaab trading station, the house was moved to Vík í Mýrdal in 1895 by the merchant Johan Peter Thorkelin Bryde. It became one of the first permanent buildings in the village and played an important role in the commercial life of the region for decades. Today, Brydebúð is a protected historic building and a treasured part of Vík’s cultural heritage.
The name Halldórskaffi, however, is not derived from Brydebúð itself. It honours Halldór Jónsson, a merchant who began trading in Vík in 1884 and helped shape the development of the growing community. His business operated from a different building, later known as Halldórsbúð, which stood nearby.
Today, Halldórskaffi brings together these two stories: the history of Brydebúð, one of Vík’s most remarkable historic buildings, and the legacy of Halldór Jónsson, whose contribution to trade and community life left a lasting mark on the village.


